05.03.1957
Efri deild: 64. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1917 í B-deild Alþingistíðinda. (1816)
116. mál, félagsheimili
Forseti (BSt):
Að vísu er ekki venja að vísa máli aftur til n., þegar n. er búin að skila nál., enda skildi ég ekki hv. þm. V-Sk. þannig, heldur að hann óskaði eftir að sjá brtt. frá hv. 6. þm. Reykv., áður en umr. væri lokið. Nú vil ég spyrja hv. 6. þm. Reykv., hvort hann óskar frekar eftir því að geta komið till. að við 2. umr. (GTh: Ég hefði gjarnan óskað eftir að fá upplýsingar hæstv. ráðh., áður en umr. væri lokið.) Ja, það er nú ekki hægt að ábyrgjast neitt um það.
Ég skal verða við því að taka málið út af dagskrá, en það verður tekið fyrir á næsta fundi d. Vænti ég þá, að liggi fyrir brtt. hv. 6. þm. Reykv.