07.03.1957
Efri deild: 65. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1924 í B-deild Alþingistíðinda. (1825)

116. mál, félagsheimili

Jón Kjartansson:

Herra forseti. Hæstv. ráðh. var rétt nýlega búinn að ljúka því að mæla gegn till. á þskj. 316, að félagsheimilunum sé séð fyrir fé til viðbótar því, sem er nú, en það tel ég skrípaleik að vera að fjölga félagasamtökum, sem eiga rétt til sjóðsins, en neita sjóðnum um aukið fé.