24.04.1957
Sameinað þing: 52. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2398 í B-deild Alþingistíðinda. (192)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman á fund og tekið til athugunar kjörbréf Ólafs Jóhannessonar, 1. varaþingmanns Steingríms Steinþórssonar í Skagafjarðarsýslu. Að athuguðu máli mælir n. með því, að kosningin verði tekin gild og kjörbréfið samþykkt.