06.05.1957
Sameinað þing: 54. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2400 í B-deild Alþingistíðinda. (199)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. (Áki Jakobsson):

Herra forseti. Með því að Ólafur Björnsson, bv. 9. landsk., víkur af þingi, höfum við tekið fyrir bréf frá forseta Sþ. um, að varamaður taki sæti fyrir hann, og liggur hér fyrir kjörbréf fyrir Jónas Rafnar á Akureyri sem fyrsta varauppbótarþm. Sjálfstfl.

N. hefur athugað kjörbréfið, og hún leggur einróma til, að kosningin sé tekin gild og kjörbréfið verði samþykkt.