23.05.1957
Neðri deild: 104. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2150 í B-deild Alþingistíðinda. (2290)

123. mál, hlutafélög

Bjarni Benediktsson:

Herra forseti. Um fyrsta dagskrármálið stendur svo á, að ég er þar framsögumaður og hef flutt till. Atkvgr. um málið átti að fara fram í gær, en var af mér ókunnugum ástæðum frestað. En þannig stendur á, að ég þarf að hverfa úr landinu nú í tvo daga í erindum, sem ég var kosinn til sem meðlimur Norðurlandaráðs, og ég vildi mjög eindregið fara þess á leit, að annaðhvort yrðu greidd atkv. um málið í kvöld eða atkvgr. frestað til mánudags.