29.05.1957
Neðri deild: 113. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2151 í B-deild Alþingistíðinda. (2305)

123. mál, hlutafélög

Sjútvmrh. (Lúðvík Jósefsson):

Ég segi nei við þessari till., en vil taka það fram með atkv. mínu vegna þeirra grg., sem hér hafa verið gefnar, að ég tel fyllilega réttmætt að gera með lagabreytingu þessari ákvæði, sem einnig taka til núgildandi eða nústofnaðra félaga, og mótmæli alveg fyrir mitt leyti þeirri lögskýringu, að ekki sé hægt með l. frá Alþ. að breyta eins þessum l., sem í gildi eru, eins og öðrum.