01.03.1957
Sameinað þing: 43. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í D-deild Alþingistíðinda. (2380)

130. mál, lán fyrir Flugfélag Íslands h/ftil flugvélakaupa

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Mál það, sem hér er til umr., liggur ljóst fyrir, og hefur fjvn. samþykkt einróma að mæla með því, að þáltill., eins og hún er á þskj. 303, verði samþykkt óbreytt. — Einn nm. var fjarstaddur, Karl Guðjónsson, þegar málið var afgreitt.

Að sjálfsögðu hefur n. á þeim stutta tíma, sem hún hafði til umráða, ekki gefizt tóm til að láta prenta nál., og leyfi ég mér því að afhenda hæstv. forseta það skriflegt.