04.02.1957
Sameinað þing: 24. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í D-deild Alþingistíðinda. (2583)
94. mál, þingrof og nýjar kosningar
Forseti (EmJ):
Þessum útvarpsumræðum verður þannig hagað, að það verða tvær umferðir hafðar, sú fyrri, þar sem ræðumenn hafa 30 mínútur hver, og hin síðari, þar sem verða 15 mínútur handa hverjum ræðumanni.
Röð flokkanna er þessi, að fyrst talar Sjálfstfl., síðan Sósfl., þá Framsfl. og loks Alþfl. Fyrstur tekur til máls hv. þm. G-K., Ólafur Thors, og talar af hálfu Sjálfstfl. og hefur 30 mínútur til umráða.