30.01.1957
Sameinað þing: 22. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í D-deild Alþingistíðinda. (2824)
96. mál, útfærsla fiskveiðitakmarka
Sjútvmrh. (Lúðvík Jósefsson):
Eins og kunnugt er, lýsti ríkisstj. því yfir, þegar hún tók við völdum, að hún mundi leggja áherzlu á stækkun íslenzku landhelginnar. Í samræmi víð þá yfirlýsingu hefur verið unnið að undirbúningi málsins, en jafnframt höfð hliðsjón af aðstæðum, bæði heima fyrir og á erlendum vettvangi. Þannig hefur t.d. fyrir nokkru verið boðað til fundar með fulltrúum landshlutanna til þess að ræða framkvæmdir í málinu. Fundur þessi mun verða hér í Reykjavík fyrri hluta næsta mánaðar. Ætlunin er, að á þessum fundi gefist fulltrúum frá hinum ýmsu landshlutum kostur á að skýra sín sérsjónarmið og þær sérstöku þarfir, sem þeir hver um sig telja að einkum beri að taka tillit til við framkvæmd málsins. Þá verður á þessum fundi að sjálfsögðu allt málið rætt og gerð grein fyrir þeim till., sem fram hafa komið um næstu aðgerðir í friðunarmálunum. Áfram verður svo unnið að undirbúningi málsins, en ekki er hægt að segja um, hverjar framkvæmdir verða né heldur hvenær hagkvæmt þykir að ákveða breytingar á friðunarlínunni.
Eins og hér hefur verið upplýst, þá hafa að undanförnu farið fram allmiklar umræður á alþjóðavettvangi um landhelgismál þjóðanna og alþjóðalög eða reglur í þeim efnum. Við höfum að sjálfsögðu fylgzt með þeim umræðum og sumpart tekið beinan þátt í þeim. Þeim umræðum, sem nú standa yfir á þingi Sameinuðu þjóðanna um þessi mál, er ekki enn lokið, og það hefur verið skoðun allra, að rétt væri að bíða með ákvarðanir um framkvæmdir í þessum efnum hér heima, þar til þessum umræðum á þingi Sameinuðu þjóðanna væri lokið. En eftir því sem bezt er vitað, þá mun þeim verða lokið eftir tvær til þrjár vikur.
Ég held svo, að þeim fsp., sem eðlilegt er að ég svari á þessu þskj., sé með þessu svarað, eftir því sem aðstæður leyfa um svör á þessu stigi málsins.