30.01.1957
Sameinað þing: 22. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í D-deild Alþingistíðinda. (2831)

186. mál, framleiðsluhagur

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þessi fsp. frá hv. þm. A-Húnv. hefur verið send hæstv. forsrh. frá hv. Alþingi. Ég var að kynna mér það núna áðan. En hæstv. forsrh. er ekki við, og getur henni þess vegna ekki orðið svarað í dag. Verður því að fara fram á það við hæstv. forseta, að hann taki málið út af dagskrá, þangað til hæstv. forsrh. er viðstaddur til að svara.