12.04.1957
Neðri deild: 86. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2417 í B-deild Alþingistíðinda. (289)

Þinghlé

forseti (EOl):

Það er í ráði, að þingfundum verði frestað fram yfir páskahátíðina, og þetta mun því verða fyrir þá hátíð síðasti fundur í þessari hv. deild.

Ég vil því leyfa mér að óska öllum hv. þm. gleðilegrar hátíðar og þeim, sem heim til sín fara nú, góðrar heimferðar og heimkomu og að við megum allir sjást hér aftur heilir á húfi, þegar störf byrja að hátíðinni lokinni.