12.04.1957
Neðri deild: 86. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2417 í B-deild Alþingistíðinda. (290)

Þinghlé

Bjarni Benediktsson:

Herra forseti. Ég veit, að ég mæli það fyrir munn allra deildarmanna, er ég þakka hæstv. forseta árnaðaróskir hans okkur til handa, og ég vil f.h. þingmanna óska honum og hans fjölskyldu alls góðs um þessa hátíð og um alla framtíð og bið hv. þm. að standa úr sætum, þá sem undir þær óskir vilja taka. — [Þm. risu úr sætum.]