09.05.1957
Efri deild: 96. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í C-deild Alþingistíðinda. (3069)

30. mál, Söfnunarsjóður Íslands

Jón Kjartansson:

Herra forseti. Ég vildi aðeins benda á, að báðir tillögumenn, sem standa að till. á þskj. 78, eru fjarstaddir, annar erlendis og hinn með leyfi hæstv. forseta. Ég vildi mælast til þess og tel það líka sjálfsagt, að forseti fresti málinu til morguns, þar til tillögumaður getur mælt fyrir sinni tillögu.