30.11.1956
Neðri deild: 24. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í B-deild Alþingistíðinda. (355)
12. mál, festing verðlags og kaupgjalds
Ólafur Björnsson:
Herra forseti. Eins og fram kom hjá frsm. n., hv. þm. V-Húnv., hefur fjhn. þrátt fyrir nokkurn skoðanamun orðið sammála um þá niðurstöðu, að rétt sé eftir atvikum að mæla með þessu frv. óbreyttu.
Þetta mál var ýtarlega rætt við 1. umr. málsins, og því er að mínu áliti ekki ástæða til þess að eyða öllu meiri tíma hv. þd. í umræður um það, ekki sízt með tilliti til þess, að fram hefur komið, að allir virðast vera sammála um þá niðurstöðu, að þetta frv. beri að samþ. En ástæðan til þess, að ég stóð hér upp, er sú, að ég vildi aðeins á það benda í sambandi við athugasemd frá meiri hl. fjhn., að ég get ekki á það sjónarmið fallizt, sem þar kemur fram, að ákvæði 4. gr. laga nr. 35 frá 1950, um verðlag, verðlagseftirlit o. s. frv., hafi gert það óhjákvæmilegt að setja lög um verðfestingu.
Í 4. gr. áðurnefndra laga eru að vísu ákvæði um það, svo sem vitnað er til hér í nál., að allar verðlagsákvarðanir, eins og það er orðað, skuli miða við þörf þeirra fyrirtækja, er hafa vel skipulagðan og hagkvæman rekstur. Að áliti meiri hl. fjhn. gerðu þessi ákvæði nauðsynlegt, að sett væru sérstök lög um verðfestinguna. Nú er það þannig, að þörf fyrirtækja er svo teygjanlegt hugtak, að ég fæ ekki séð, að ákvæði um það, að verðlagsákvæðin skuli miðast við hana, hindri í rauninni hvaða aðgerðir sem er af hálfu stjórnarvaldanna. Enn fremur má á það benda, að það eru stjórnarvöldin, sem meta þörf fyrirtækjanna hverju sinni, og þess vegna ekkert hægara en að segja sem svo: Þið hafið ekki þörf fyrir meiri álagningu en þetta. — Í rauninni er ekkert því til fyrirstöðu, að þrátt fyrir þetta ákvæði væru fyrirtæki, a. m. k. um skemmri tíma, skylduð til þess að dreifa vörum, jafnvel þó að slíkt hefði töp í för með sér, þannig að ákvæðin um verðfestingu eru að mínu áliti að því leyti óþörf, að slíkt hefði mátt framkvæma í skjóli heimildar í gildandi lögum.
Að öðru leyti lítum við sjálfstæðismenn yfirleitt þannig á, að enda þótt við teljum meðferð málsins að ýmsu leyti gallaða, þá er þó hér um viðleitni að ræða til þess að hamla um sinn gegn verðbólgunni, og teljum því rétt að styðja staðfestingu brbl. frá því í ágúst í sumar.