03.12.1956
Neðri deild: 25. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 283 í B-deild Alþingistíðinda. (359)

12. mál, festing verðlags og kaupgjalds

Forseti (EOl):

Út af því, sem hv. 1. þm. Rang. minntist á, vil ég aðeins minna á, að þetta eru bráðabirgðalög, og mér skilst, að hæstv. ríkisstj. muni kjósa í sambandi við önnur lög, sem hún muni leggja hér fram, að láta sinar skoðanir í ljós um framtíðarráðstafanir.