13.12.1956
Neðri deild: 31. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í B-deild Alþingistíðinda. (397)

5. mál, gjaldaviðauki

Fjmrh. (Eysteinn Jónason):

Herra forseti. Í frv. þessu er till. um að innheimta með viðaukum nokkur gjöld, sem undanfarið hafa verið innheimt á þann hátt. Frv. er samhljóða gildandi lögum um þetta efni. — Ég leyfi mér að vísa til athugasemdanna við lagafrumvarpið og óska eftir því, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari umræðu.