11.12.1956
Neðri deild: 30. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 317 í B-deild Alþingistíðinda. (432)

71. mál, vöruhappdrætti fyrir Samband íslenskra berklasjúklinga

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Forráðamenn vöruhappdrættis Sambands íslenzkra berklasjúklinga hafa farið þess á leit að fá að hækka miðatöluna í happdrættinu, og þeir auka þá vitanlega vinningana að sama skapi, það leiðir af ákvæðum laganna. Ég leyfi mér að mæla með þessu frv. — það fjallar um að hækka vinningatöluna — og legg til, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni umr.