18.12.1956
Efri deild: 33. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 461 í B-deild Alþingistíðinda. (611)
90. mál, skemmtanaskattsviðauki
Jón Kjartansson:
Herra forseti. Það er í framhaldi af því, sem hv. þm. N-Ísf. (SB) minntist á, að ég kvaddi mér hljóðs.
Á síðasta þingi flutti ég ásamt þáv. hv. þm. Barð. frv. um, að félagsheimilin fengju á ný þann hluta skemmtanaskattsins, sem þau höfðu til 1. jan. 1952. Þessu frv. var vísað frá hér í hv. d. með rökstuddri dagskrá, þar sem skorað var á ríkisstj. að endurskoða félagsheimilalögin og tryggja félagsheimilasjóði auknar tekjur. Ég vildi leyfa mér að spyrja hæstv. ráðh., hvað þessari endurskoðun líður, hvað langt hún er komin. Ég hef ekki orðið var við neitt frv. í þessa átt, og flutti þess vegna á ný nú á þessu þingi sama frv. og ég flutti á síðasta þingi. En það liggur hjá hv. fjhn. d., og ég veit ekki, hvað hún muni við það gera, en hygg, að hún bíði eftir að fá vitneskju um, hvað líði þessari endurskoðun.