20.12.1956
Efri deild: 41. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 626 í B-deild Alþingistíðinda. (697)

92. mál, útflutningssjóður o. fl.

Forseti (BSt):

Út af tilmælum hv. þm. Vestm. skal ég verða við þeim að því leyti, að liggi hans nál. og minni hl. ekki fyrir vélritað og útbýtt, þegar að honum kemur að mæla fyrir því, þá skal ég fresta fundi. En ég sé ekki, að það skaði neitt hans málstað, þótt mælt sé nú þegar fyrir nál. meiri hl.