14.12.1956
Neðri deild: 32. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 769 í B-deild Alþingistíðinda. (840)

2. mál, afnot íbúðarhúsa í kaupstöðum

Forseti (EOl):

Út af ummælum hv. 1. þm. Reykv. vil ég aðeins, af því að hann hefur ekki áður átt sæti í þessari deild, segja honum frá því, að sá síðasti forseti, sem við höfðum í þessari hv. deild, tók meira að segja mál frá nefnd, sem hún hafði ekki afgreitt, mál, sem flutt var af stjórnarandstöðunni, og lét afgreiða það við 2. umr.

Þetta er 2. mál þingsins, sem hér er, og vona ég, að mér verði fyrirgefið, ef ég reyni að ganga eitthvað á röðina og taki samt tillit til allrar þeirrar umhyggju, sem hér hefur fram komið, um það, að ekki verði of mikilli þrákelkni beitt.