24.01.1957
Efri deild: 44. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 771 í B-deild Alþingistíðinda. (849)

2. mál, afnot íbúðarhúsa í kaupstöðum

Forseti (BSt):

Að vísu teldi ég það æskilegra að sá hæstv. ráðh., sem málið heyrir undir, væri hér viðstaddur og segði nokkur orð því til skýringar. En vitanlega hef ég ekki tök á því að ráða við það, hvort hæstv. ráðherrar mæta hér eða ekki. Kannske einhver vilji gera svo vel og athuga, hvort hann er í Nd. og geti komið hér.

Ja, hæstv. ráðh. er víst ekki staddur í húsinu eða a.m.k. ekki hér í grenndinni. Ég get orðið við þeirri ósk nú í þetta sinn að taka málið út af dagskrá, en vitanlega verður að afgreiða það og koma því til nefndar eða þá fella það frá 2. umræðu. — Hæstv. ráðh. er kominn hér.