16.02.1957
Sameinað þing: 33. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 836 í B-deild Alþingistíðinda. (891)

1. mál, fjárlög 1957

Forseti (GJóh):

Eins og hv. alþm. vita, mæla þingsköp svo fyrir, að svokölluð eldhúsdagsumræða fari fram við framhald 1. umr. fjárlaga. Það mun hafa orðið samkomulag um að fresta þessari umr. nú, eins og oft hefur verið gert á undanförnum árum, og er ætlunin, að slík umr. fari fram síðar. Ég vil því leita afbrigða frá fundarsköpum um þessa frestun.