02.06.1958
Neðri deild: 109. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1306 í B-deild Alþingistíðinda. (1031)
187. mál, lífeyrissjóður togarasjómanna
Forseti (EOl):
Það hefur komið fram ósk um, að þessu máli væri flýtt, og væri ákaflega æskilegt, ef hægt væri að hafa 2. umr. um málið nokkru síðar í dag. Ég vil leyfa mér að spyrja hv. nm. eða formann heilbr.- og félmn., hvort t.d. stundarfjórðungur, ef ég boðaði til nýs fundar til 2. umr. eftir stundarfjórðung, mundi nægja.