13.02.1958
Efri deild: 51. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1395 í B-deild Alþingistíðinda. (1131)

94. mál, húsnæði fyrir félagsstarfsemi

Frsm. (Eggert Þorsteinsson):

Herra forseti. N. hefur yfirfarið frv., og eins og segir í nál. á þskj. 215, þá mælir n. einróma með samþykkt frv. ágreiningslaust. Vænti ég, að ekki þurfi frekari framsögu fyrir málinu, en vísa að öðru leyti til framsöguræðu þeirrar, er ég flutti, þegar málið var hér til 1. umr.