11.04.1958
Neðri deild: 76. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1427 í B-deild Alþingistíðinda. (1218)

144. mál, löggilding verslunarstaðar að Skriðulandi

Frsm. (Ásgeir Sigurðsson):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað frv. á þskj. 285 og leggur til, að það verði samþ. Það er um löggilding verzlunarstaðar á Skriðulandi í Saurbæjarhreppi í Dalasýslu. Telur n., að þetta sé þarft mál og geti orðið til þess að greiða fyrir viðskiptum Saurbæinga, og telur því rétt að mæla með því.