16.05.1958
Neðri deild: 97. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1544 í B-deild Alþingistíðinda. (1415)
189. mál, bráðabirgðastöðvun á tollafgreiðslu
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Það er augljóst orðið, að frv. það um útflutningssjóð o.fl., sem verið hefur til 1. umr. undanfarið hér í hv. d., hlýtur ekki lokaafgreiðslu á hv. Alþ. fyrir helgi. Því leyfi ég mér í samráði við ríkisstj, og eftir að hafa haft samband við formann stjórnarandstöðunnar að leggja til, að sett verði nú lög, sem heimili ríkisstj. að stöðva tollafgreiðslu á aðfluttum vörum, þar til fram komið frv. um útflutningssjóð o.fl. hefur hlotið fullnaðarafgreiðslu á Alþ. Hef ég einnig rætt það við hæstv. forseta þessarar deildar, að greitt yrði fyrir þessu frv. nú í gegnum d., og raunar einnig við hæstv. forseta Ed. um, að það sama yrði gert þar nú í kvöld, og yrði það þá til þess að spara fundarhöld í deildunum á morgun, og gætu menn þá þess í stað einbeitt sér að því að vinna að útflutningssjóðsfrv. og öðrum málum í nefndum.
Ég vil taka fram, að ég sé ekki ástæðu til þess að leggja til, að þessu frv. verði vísað til nefndar, þar sem um það mun vera samkomulag.