16.05.1958
Neðri deild: 98. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1546 í B-deild Alþingistíðinda. (1422)
189. mál, bráðabirgðastöðvun á tollafgreiðslu
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Án þess að ég ætli að fara að halda hér uppi pexi um þetta atriði, þá vil ég benda á, að hér hlýtur að vera um misskilning að ræða hjá hv. þm. Ég tók það einmitt fram, að það hefði verið haft samráð við form. Sjálfstfl. um þetta frv. og það einmitt í fyrstu orðunum, sem ég sagði.