29.05.1958
Neðri deild: 108. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1642 í B-deild Alþingistíðinda. (1606)
150. mál, atvinna við siglingar
Frsm. (Karl Guðjónsson) :
Herra forseti. Þetta mál hefur nú farið í gegnum þrjár umr. í hvorri deild þingsins og tekið breytingum allverulegum frá því, sem það var upphaflega lagt fram. Þessar breytingar eru flestar eða raunar allar gerðar eftir tilmælum aðila, sem telja sig málið varða, og hér eru enn gerðar brtt, Hv. 5. þm. Reykv. hefur lagt þær hér fram á þskj. 578.
Ég hygg, að hér sé um að ræða breyt., sem fram eru komnar að tilhlutan Vélstjórafélags Íslands, en það félag hefur þegar áorkað því, að verulegar breyt. hafa verið gerðar á frv. Hins vegar lagði það félag ekki fram sínar brtt. við frv., á meðan það var hjá n. í þessari hv. d., og hefur þess vegna sjútvn. hér ekki fjallað sérstaklega um þessar till., sem hér liggja fyrir. Mér sýnist þó um hina fyrri þeirra, að hún sé í nokkru ósamræmi við það, sem áður hefur verið haldið fram af hv. flm. hér í d., því að það þótti of lágt mark, eins og upphaflega var í frv., að miða réttindin við 15 ha. vélar að lágmarki, eins og gert er í gildandi lögum, og þar af leiðandi tók sjútvn. þessarar d. allt slíkt lágmarksákvæði út, og fylgir þar með þetta ákvæði algerlega lögskráningunni á fiskiskipin, svo að ég sé ekki annað en þessi brtt., eins og hún er hér skýrð af flm., sé með öllu óþörf.
Um hina síðari brtt. á sama þskj. skal ég taka það sérstaklega fram, að ég er ekki eins sannfærður um það, að hún sé efnislega út í bláinn, eins og um hina fyrri. Hitt er annað mál, að einmitt þeir aðilar, sem nú telja, að hér vanti sérstök ákvæði fyrir ákveðinn hluta af þeim vélstjórum, sem lokið hafa prófi frá Vélskóla Íslands, hafa í heildinni talið, að málið allt mætti bíða og ætti að bíða. Ef hér er um að ræða eins brýna þörf á breytingu og látið hefur verið í veðri vaka, þá held ég, að lítið sé orðið úr þeirri afstöðu talsmanns og flutningsmanns þessarar till., að málið allt eigi að bíða. Ég sé ekki annað, en að á því lokastigi, sem málið er nú, þá sé hér borin fram till. fremur til þess að setja það í hættu, að málið nái framgangi hér á þessu þingi, heldur en hitt, að eins sé aðkallandi um breytinguna og hér hefur verið látið í veðri vaka.
Ég mun þess vegna með tilliti til þess, að komið er fast að þinglokum, leggjast gegn því, að þessar till, verði samþ., en legg áherzlu á, að d. afgreiði málið einmitt nú við þessa umr. endanlega.