03.03.1958
Efri deild: 59. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í C-deild Alþingistíðinda. (1640)

138. mál, dýralæknar

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Það er aðeins örstutt leiðrétting, — Hv. þm. Barð. gat þess, að það mundu vera, að því er mig minnir, fimm dýralæknisumdæmi auð eða án dýralæknis nú. Ég veit ekki betur en hæstv. landbrh. sé nýbúinn að skipa þrjá nýja dýralækna, þannig að raunverulega eru ekki nú nema tvö dýralæknisumdæmi án dýralæknis. Þar að auki veit ég a. m. k. um einn mann, sem enn er óráðinn, svo að nú fer að fækka þeim umdæmum, sem vantar lækna.