11.12.1957
Efri deild: 36. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í B-deild Alþingistíðinda. (225)
73. mál, kosningar til Alþingis
Forseti (BSt):
Hv. þm. V-Sk. (JK) sagði í upphafi ræðu sinnar, að meðferð þessa máls væri með eindæmum, og færði það m.a. til, að það hefði verið tekið á dagskrá sama daginn og frv. var lagt fram.
Hv. þm. veit það vel, að þetta er ekki rétt, að það sé með nokkrum eindæmum. Þetta er þvert á móti ákaflega venjulegt, þegar líður að þinghléi eða þinglausnum, að stjórnarfrv. eru gjarnan tekin á dagskrá sama daginn og þau eru lögð fram. Því höfum við báðir oftsinnis verið vitni að og báðir stutt þau mál undanfarið.
Ég mótmæli því algerlega, að svo miklu leyti sem ég kann að eiga þessar ádeilur, að ég hafi beitt neinu ofbeldi sem forseti í þessu máli. (JK: Ég ásaka ekki hæstv. forseta.) Ja, fyrir að taka frv. á dagskrá, skilst mér.