07.05.1958
Sameinað þing: 43. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í D-deild Alþingistíðinda. (2379)

63. mál, heymjölsverksmiðja

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins þakka hv. allshn. fyrir afgreiðsluna á þessari till., og ég geri mér vonir um, eins og fleiri, að samþykkt hennar megi verða heilladrjúgt spor í þá átt, að komið verði hér upp heymjölsverksmiðju, eftir að fullnaðarrannsókn hefur farið fram á því máli. — Ég þarf svo ekki að segja meira um þetta að þessu sinni, en vil aðeins þakka allshn. fyrir afgreiðslu málsins.