30.05.1958
Sameinað þing: 48. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í D-deild Alþingistíðinda. (2447)

54. mál, aðsetur ríkisstofnana og embættismanna

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. fjvn. fyrir afgreiðslu þessa máls, og ég get verið samþykkur þeirri brtt., sem n. flytur á þskj. 511.