12.03.1958
Sameinað þing: 33. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í D-deild Alþingistíðinda. (2462)
141. mál, afnám tekjuskatts
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Hv. 1. þm. Reykv. hefur ekki heyrt þau orð, sem ég sagði hér fyrr, það var auðheyrt á því, sem hann sagði. Ég sló engu föstu um það, að það vantaði 200 millj. kr. í ríkissjóð og útflutningssjóð. Ég sagði, að það vantaði fé í þessa sjóði, menn greindi á um, hvað það væri mikið, ég gæti haldið jafnvel 200 millj, kr., en sumir segðu minna. Ég hef ekki gefið neinar upplýsingar um það, að það vantaði 200 millj., þó að ég kæmist svo að orði áðan, hvernig hv. þm. Hafnf. ætlaði að ná 100 millj. í staðinn fyrir tekjuskattinn til viðbótar kannske — ég sagði: kannske — 200 millj. í hina sjóðina. Það er alger misskilningur, að ég slægi nokkru föstu um það, hvað mikið fé vantaði. Og það er vitanlega enginn algildur dómur til um það, það fer eftir mati manna, hvað þeir telja forsvaranlegt að leggja upp með. En hitt fullyrði ég, að það vantar fé. Það vita allir þingmenn og hv. 1. þm. Reykv. eins og aðrir. Við skulum segja, að það sé ekki nema 100 millj., við skulum segja það. Svo eru 100 millj. aðrar í staðinn fyrir tekjuskattinn. Ja, mér er spurn: Hvernig á að ná því með tollum á lúxusvörur, eins og hv. þm. Hafnf. taldi að ætti að gera einna helzt? Ég álít, að jafnvel tollur á lúxusvörur hafi sín takmörk, hvað þýði að Leggja á þær háa tolla, einmitt lúxusvörur, sem menn geta án verið.