23.04.1958
Sameinað þing: 40. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í D-deild Alþingistíðinda. (2487)

179. mál, styrkur til flóabátsins Baldurs

Flm. (Pétur Pétursson):

Herra forseti. Af því að fundartíminn er nú búinn, skal ég vera mjög stuttorður um þetta, enda skýrir grg. málið. Við flm. höfum skrifað samgmrn. út af þessu og málið hafði verið rætt í samvinnunefnd samgöngumála og hún orðið sammála um, að heppilegra væri að flytja þessa till.

Ég vil gera að till. minni, að málinu verði vísað til hv. fjvn.