02.06.1958
Sameinað þing: 49. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í D-deild Alþingistíðinda. (2521)

190. mál, endurkaup seðlabankans

Eggert Þorsteinsson:

Herra forseti. Í trausti þess, að n. hraði svo störfum sem henni er unnt, og til þess að málið geti fengið þinglega afgreiðslu, segi ég já við till. til nefndar.

Emil Jónsson: Ég vil gera þá grein fyrir atkv. mínu, að ég tel sjálfsagt að leitast við að fullnægja lánaþörfum iðnaðarins, en óforsvaranlegt að gera það á þann hátt að láta málið ekki fara til nefndar, og segi þess vegna já.