07.05.1958
Sameinað þing: 43. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í D-deild Alþingistíðinda. (2565)

17. mál, eftirgjöf lána

Forseti (EmJ):

Ég vil út af aths. hv. 1. þm. Rang, um það, hvers vegna fsp. undir 1. dagskrárlið hafi ekki verið tekin fyrir, geta þess, að ég hef átt tal um það í morgun við hæstv. forsrh., hvort hann mundi geta komið og svarað fsp., en hann kvað sér það í dag alveg ómögulegt, Ég tók þá afsökun hans gilda, enda hefur þetta ekki dregizt svo lengi. Það hefur dregizt miklu lengur oft að svara fyrirspurnum heldur en nú hefur gerzt um þessa fsp., þó að hins vegar æskilegt væri, að þeim yrði svarað þegar. En ég verð að taka þær ástæður, sem hæstv. forsrh, bar fram, fullkomlega gildar.