20.11.1957
Sameinað þing: 14. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í D-deild Alþingistíðinda. (2716)
34. mál, bygging kennaraskólans
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég veit að vísu, að hv. 1. þm. Reykv. (BBen) er bæði skýr maður og ráðagóður, en ég fæ samt ekki skilið það, hvernig hann ætlar að fara að því að halda áfram, t.d. norður á Akureyri, húsbyggingu, sem hafin er í Reykjavík. Ég held, að ef á að byggja hús norður á Akureyri, verði að hefja bygginguna þar, og þess vegna held ég, að hann hafi lesið eitthvað ónákvæmlega orðalagið á mínni tillögu. Hitt virðist ekki vera neitt ágreiningsmál milli manna hér, hvað langt sé komið þeim framkvæmdum, sem átt hafa sér stað í sambandi við byggingu kennaraskólans hér. Mér sýnist það liggja alveg ljóst fyrir. Þeim er komið nokkuð áleiðis, en ekki langt og ekki lengra en svo, að mér virtist, eins og ég gerði grein fyrir í ræðu minni, að það gæti vel komið til mála að hefja byggingu annars staðar. En ég get ekki orðað það þannig, að það eigi að halda henni áfram annars staðar. Vona ég, að hv. þm. átti sig á því.
Meginmál minnar brtt. er auðvitað um það að ákveða byggingunni stað annars staðar, þ.e.a.s. ekki í Reykjavík, heldur einhvers staðar á Norður-, Austur- eða Vesturlandi, en ég hef af ástæðum, sem ég tilgreindi í ræðu mínni áðan, ekki séð ástæðu til þess að gera ákveðnari till. um staðinn að svo stöddu og vil gjarnan, að um það sé fjallað í þeirri n., sem fær þetta mál til meðferðar.
Um minn hug til Reykjavíkur eða annarra ætla ég að ég viti bezt sjálfur. Till. er flutt af góðum hug til þess að leggja það til, sem ég tel réttast í þessu máli. Ég vona, að aths. hv. þm. hafi líka verið gerð af góðum hug.