15.11.1957
Efri deild: 22. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (29)

3. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Með þessu frv. er lagt til að framlengja fyrir næsta ár innheimtu á þeim söluskatti, sem eftir var skilinn í lögum á s.l. vetri, þegar löggjöfinni um hann var breytt. — Ég vil leyfa mér að leggja til, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari 1. Umr.