10.10.1957
Sameinað þing: 1. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í B-deild Alþingistíðinda. (2963)

Kosning forseta

Ólafur Thors:

Herra forseti. Það er ekki af því, að ég telji, að það skipti neinu aðalmáli, en forsrh. tjáði formanni þingflokks sjálfstæðismanna og mér í gær, að það yrði ekki forsetakjör í dag. Og þá bjóst ég við, að hann mundi óska eftir, að það yrði ekki.