18.12.1957
Efri deild: 45. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í B-deild Alþingistíðinda. (297)

73. mál, kosningar til Alþingis

Forseti (BSt):

Ég var a.m.k. búinn að segja: Það hefur enginn kvatt sér hljóðs. (Gripið fram í: Nei.) Og í því opnaði hv. þm. N-Ísf. hurðina og gekk hér inn. — Hv. þm. N-Ísf, hefur kvatt sér hljóðs, þess vegna er ekki um annað að gera nú en fresta fundi, og með því að þessi seinni partur er ákveðinn fyrir flokksfundi, verður það að vera til kvölds og er fundi frestað þar kl. 9 í kvöld. — [Fundarhlé.]