03.03.1958
Neðri deild: 59. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1932 í B-deild Alþingistíðinda. (3058)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Björn Ólafsson:

Snemma á þessu þingi lagði ég fram frv. um veltuútsvör. Þessu frv. var vísað til fjhn., eins og vera bar. En það hefur ekki borið neitt á því, að hv. n. hafi tekið þetta frv. til athugunar eða afgreiðslu, þó að nú séu liðnir nokkrir mánuðir, síðan frv. var lagt fram. Ég mun gera kröfu til þess, að forseti taki málið á dagskrá mjög bráðlega, ef n. ætlar ekki bráðlega að sinna frv. á einn hátt eða annan.