16.04.1958
Sameinað þing: 39. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1934 í B-deild Alþingistíðinda. (3064)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Forseti (EmJ) :

Ég vil í þessu tilefni beina því til formanna nefnda, að þeir leitist við, eftir því sem föng eru á, að greiða fyrir afgreiðslu mála í nefndum, og gildir það þá vitaskuld um það, sem hér hefur verið nefnt, og annað, sem nefndirnar kunna að eiga óafgreitt.