05.05.1958
Neðri deild: 87. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1956 í B-deild Alþingistíðinda. (3100)

Varamenn taka þingsæti- rannsókn kjörbréfa

forseti (EOl) :

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Með því að ég er á förum til útlanda og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 144. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, 1. varaþm. Sjálfstfl, hefur áður átt sæti á þingi.

Og að varamaður, Ásgeir Sigurðsson skipstjóri, taki sæti á Alþingi, meðan ég er fjarverandi.

Jóhann Hafstein.“

Dagsett í Reykjavík 2. maí 1958,

Varamaður hv. 5. þm. Reykv. hefur áður tekið sæti á þingi og undirskrifað eiðstaf. Tekur hann þá sæti hér.