20.12.1957
Sameinað þing: 22. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í B-deild Alþingistíðinda. (415)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1958
Páll Zóphóníasson:
Í gildandi fjárlögum er sams konar heimild og þessi till. felur í sér. Það er starfandi n. í málinu, sem hefur verið að athuga, hvaða staðir mundu heppilegastir. Mér er ekki kunnugt um, að hún hafi enn skilað áliti til ríkisstj., og ég sé ekki ástæðu til þess að taka málið fyrir nú. Komist n. að þeirri niðurstöðu, að það muni þurfa sérstaka heimild, og skili hún ekki áliti fyrir áramót, svo að málið megi afgreiða eftir gildandi heimild, þá mun hún vafalaust fara þess á leit við ríkisstj., að heimildin verði veitt aftur, og ekki standa á þinginu að veita hana þá.