20.12.1957
Sameinað þing: 22. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í B-deild Alþingistíðinda. (421)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1958

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Í gildandi fjárlögum er heimild til að festa kaup á landi fyrir uppeldisskóla fyrir ungar stúlkur. Á vegum menntmrn. starfar n. að undirbúningi málsins. Verði þörf nýrrar heimildar á næsta ári, mun ríkisstj. leita hennar. Með tilvísun til þessa segi ég nei.