12.12.1957
Neðri deild: 38. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 603 í B-deild Alþingistíðinda. (469)

7. mál, útflutningssjóður o. fl.

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég ætlaði að leyfa mér að mælast til þess, að það væri kannað, áður en umr. héldu áfram, hvort hæstv. ráðherrar væru ekki í þinghúsinu, og einnig mætti kannske koma því áleiðis til skrifstofu Alþingis að athuga, hvort ekki væri hægt að útbúa sérstaka ráðherrabjöllu í forsetastóli, því að það virðist ekki vera vanþörf á því. En sérstaklega vildi ég óska eftir því, að það væri kannað, hvort hæstv. sjútvmrh., sem við eigum mjög vantalað við, sé ekki hérna í þinghúsinu og geti verið viðstaddur umræðurnar.