29.10.1957
Efri deild: 12. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í B-deild Alþingistíðinda. (5)

37. mál, símahappdrætti lamaðra og fatlaðra

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Við nánari athugun kemur í ljós, að það er ekki tímabært að flytja brtt. um að bæta heimild í frv. til þess að undanþiggja vinninga í happdrætti Krabbameinsfélagsins. Kemur það til athugunar síðar.