04.03.1958
Efri deild: 60. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 651 í B-deild Alþingistíðinda. (550)

100. mál, skattur á stóreignir

Forseti (BSt):

Ég hef vonazt eftir því, að hæstv. fjmrh. gæti verið hér viðstaddur, en svo er ekki enn a.m.k. og er ekkert við því að gera. Hann á ekki sæti í þessari hv. d., og ég hef ekkert sérstakt vald til að krefjast þess, að hann mæti á fundi. Hv. þm. Vestm. heldur ræðu sinni áfram.