06.03.1958
Efri deild: 61. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 652 í B-deild Alþingistíðinda. (554)
100. mál, skattur á stóreignir
Forseti (BSt):
Hæstv. fjmrh. hefur tilkynnt mér, að hann geti ekki mætt á fundi í dag sökum áríðandi starfa, sem hann hefur með höndum og mér er persónulega kunnugt um að hann getur ekki látið undir höfuð leggjast. Þess hefur verið óskað, að hann væri við umr. um dagskrármálið, og er mér kunnugt um, að hæstv. ráðh. vill sjálfur gjarnan vera við þær umr. Er því dagskrármálið tekið út af dagskrá.