13.03.1958
Efri deild: 66. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 672 í B-deild Alþingistíðinda. (564)

100. mál, skattur á stóreignir

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Eins og ég hef tjáð hæstv. forseta, að vísu utan fundar, höfum við hv. 6, þm. Reykv. verið að undirbúa brtt. í framhaldi af því frv., sem hér liggur fyrir til staðfestu, en eru brtt. við lögin sjálf, og með því að fullnaðarsmiði á þeim er ekki alveg lokið, vildi ég mælast til þess við hæstv. forseta, að málið yrði tekið út af dagskrá í dag, svo að okkur ynnist tími til að skila þeim nægilega snemma í prent, að þær þó gætu komizt að við 2. umr. málsins, sem hér liggur fyrir.